Ævintýri í Hulburg
Hér má finna tvö ævintýri sem gerast í borginni Hulburg í Forgotten Realms. Borgin er ört vaxandi eftir nokkur erfið ár¸ en löngum hefur nálægðin við Thar og orkaættbálkana þar valdið íbúum Hulburg miklum vandræðum. Sífellt fleiri flykjast til borgarinnar í von um gróða og ævintýri¸ hið sama gildir um þá sem vilja græða á öðrum. Seyðisbruggarinn í Hulburg Í borginni Hulburg við Mánahaf starfar seyðisbruggarinn Bertalamein Vésteins. Þegar þjófar ræna skoffíninu hans leitar hann til hetjanna um að hjálpa sér að endurheimta fuglinn. Grafhýsið Þegar Vilfreð skilar sér ekki heim leitar móðir hans¸ Linda Karlson¸ til hetjanna. Vilfreð fór með vinum sínum að grafhýsinu við Keldonhöfða en síðan þá hefur ekkert til hans sést. Geta hetjurnar fundið drenginn og komið honum heim heilu og höldnu? --- Þessi bók er ætluð sögumanni. Sögurnar tvær eru hugsaðar fyrir hetjur af lægstu reynslustigum og henta því vel bæði byrjendum og lengra komnum. Þá má finna lýsingar á göldrum¸ hæfileikum¸ óvættum og reglum í Player's Handbook¸ Dungeon Master's Guide¸ Monsters Manual og Volo's Guide to Monsters. Þá er einnig ágætt að hafa Sword Coast Adventurer's Guide við höndina.